Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Hin síđan mín

jćja jćja jćja

02. apríl 2008 klukkan 13:00

Jæja er ekki kominn tími til að skrifa einhverjar fréttir hérna á þessa blessuður síðu. En hvar á maður að byrja því það hefur svo margt gerts síðan ég skrifaði síðan.
Ok ég er flutt enn og aftur og bý nú á gamla varnarsvæðinu. Er enn í HÍ en er að hugsa um að skipta alveg um fag næsta haust. Táknmálið ekki alveg að gera sig.
Finni er ennþá á sama leikskóla og áður en bráðum þarf nú að fara að huga að því í hvaða skóla hann á að fara eftir eitt ár. Já þessi börn þau stækka svo hratt. Finnst bara vera svo stutt síðan hann fæddist. Já og talandi um fæðingar þá sko fullt af börnum búið að fæðast í kringum mig. Rakel og Gísli fengu strák, Jóhanna vinkona fékk annan strák, Gunni og Eygló fengu strák, Nína og Ryan fengu strák og loks fengu Katrín og Ingvi svo stelpu. Til hamingju þið öll og allir hinir líka.
Nú svo byrjaði ég í Gospelkór sem heitir KICK og það er æði. Var einmitt á Gospelkórahelgi um síðustu helgi og það var æði. Hef held ég ekki hlegið svona mikið eða sungið á ævinni. Var allavega með harðsperrur í maganum og lika í raddböndunum á mánudaginn. En ja það var æðislegt.
Veit ekki hvað ég á að segja meira, ætla að reyna að halda áfram að gera fyrirlestur um Parkinsions Heilkennið fyrir Tal og málmein sem ég á að flytja á morgun.
Bless allir þið sem lesið og munið að Jesús er það besta sem maður getur átt í lífinu og ekkert annað skiptir mái.
Guðrún Helga sem er að reyna að vera dugleg að læra

Guđrún Helga Högnadóttir
2 athugasemdir

My space

20. apríl 2007 klukkan 12:11
Jæja þá er ég loksins komin með sona my space síðu.
Slóðin er hér til hliðar undir Hin síðan mín

Heyrumst fljótt aftur
Guðrún sem er alveg að fara að drukkna í próflestri.
Guđrún Helga Högnadóttir
5 athugasemdir

Páskamót 2007

13. apríl 2007 klukkan 14:07
Jæja þá er páskamótið yfirstaðið og satt best að segja fannst mér það alveg frábært. Guð var svo greinilega að vinna í lífum fólks og koma því í nærveru sína og fylla það af kærleika sínum sem aldrei fyrr.
Þetta var bara æðislegt mót og ég er strax farin að hlakka til þess næsta.
Samt veit ég að Guð ætlar ekkert að stoppa hér.
Hann ætlar að halda áfram að vinna í lífum okkar dag frá degi og halda áfram að úthella kærleika sínum yfir okkur dag hvern.
Bæn mín er sú að við megum halda áfram að sækjast eftir nærveru Guðs og ekki gleyma því sem við höfum lært.

Kveðja
Guðrún  Helga
Guđrún Helga Högnadóttir
Engin athugasemd

Jćja jćja

22. mars 2007 klukkan 14:59
Jæja er ekki löngu komin tími á aðra færslu. Ég kíki sko hérna inn á hverjum degi en ég nenni ekki alltaf að vera að skrifa eitthvað bull.
Allavega þá erum við sem sé löngu flutt á Stúdentagarða og okkur líður bara alveg ágætlega þar. Finnbjörn fílar sig vel í leikskólanum og í barnakirkjunni á sunnudögum. Hann er orðin svo stór og farin að tjá sig svo mikið.
Skólinn gengur ágætlega. Féll að vísu í einu prófi um jólin en náði því sem þurfti til að fá námslánin greidd út núna í janúar. Tek það bara upp í ágúst.
Og svo er það þetta með blessað sumarið. Á ég að vinna eða ekki. Ég þarf nefnilega að taka frí í júlí vegna þess að þá er leikskólinn lokaður og enginn til að passa barnið. En það eru ekki svo margir staðir sem vilja ráða fólk sem er með svona sérþarfir. Er að vísu búinn að sækja um á einum leikskóla og það er í athugun. En annars get ég alltaf fengið vinnu á Select en satt best að segja er ég ekki alveg að nenna því.
Æi nenni ekki að röfla um þetta hér.
Allavega þá er þetta komið nóg af bulli í bili. Þarf að fara að sækja Finna í leikskólan og fara svo á æfingu fyrir páskamótið. Já páskamótið er framundan og ég hlakka geðveikt mikið til. Ég er alveg að springa úr spenningi. Guð ætlar að gera góða og stóra hluti á þessu móti. Endilega biðjið vel fyrir þessu og verið í eftirvæntingu fyrir því hvað Guð ætlar að gera.
Allavega bless í bíli. Ég lofa að reyna að hafa ekki svona langt á milli blogga næst
kveðja
Guðrún sem er í fínasta bloggstuði

Ps
sett inn nýjar myndir fljótlega
Guđrún Helga Högnadóttir
2 athugasemdir

Stúdentagarđar :)

12. ágúst 2006 klukkan 16:54

Jæja þá er komið að því að láta mína kæru lesendur vita af því að við erum að fara að flytja!!!!!
Thats right, again flytja . Við fengum loksins að vita það að við fengum úthlutað 50fm íbúð á Stúdentagörðum. Sem er bara frábært og yndislegt. Erum að vísu bara með eitt herbergi en hei við gerum bara gott úr því. Reynum að koma okkur sem best fyrir og hafa sem minnst af dóti. Það er víst fínt leiksvæði frammi á gangi og fullt af krökkum að leika við. Svo Finna ætti ekki að leiðast.
Allaveg planið er að flytja föstudaginn 1 september svo allir sem geta endilega hafið samband og látið okkur vita hvort þið eruð til.
Annars er seinasti dagurinn minn á Select 31 ágúst og skólinn byrjar 4 september. Hlakka ekkert smá til að takast á við verkefni vetrarins.
Jæja nóg í bili
kveðja
Guðrún Helga soon to be Háskólanemi :)

Guđrún Helga Högnadóttir
7 athugasemdir

Sumarfrí :)

30. júní 2006 klukkan 14:50
Jæja þá er ég kominn í hið langþráða sumarfrí þetta árið. Það verður fínt að geta slappað aðein af og haft það notaleg með fjöslkyldunni. Nonni byrjar í fríi á mánudaginn og þá á að reyna að fara eitthvað í tjaldferð.Brosandi Bara að elta sólina eða eitthvað þannig.
Annars er það að frétta að ég er ekki ennþá búinn að fá svar frá Stúdentagörðum og því veit ég ekki enn hvort ég fái þar inni eða ekki. Næsta skref er svo að sækja um námslán og þá er þetta allt að smella saman. Jæja allaveg þetta var nú bara svona smá færsla í mínu fína sumarfrí. Skrifa aftur fljóltega.
Kveðja
Guðrún Sumarfrísgella


Guđrún Helga Högnadóttir
4 athugasemdir

Velkomin á nýja bloggiđ mitt

12. júní 2006 klukkan 15:52
Jæja mér fannst vera kominn tími til að breyta aðeins til. Var orðinn soldið leið á blogcentral.is.
En breytingar eru bara af hinu góða. Svalur.
Lífið gengur sinn vanagang og maður er bara á fullu að vinna til að safna fyrir skólaárunum sem eru framundan. Ég er allavega kominn inn í háskólan og er bara að bíða eftir svari frá stúdentagörðum um það hvort þeir vilji lána okkur íbúð eða ekki.(biðjum fyrir því)
Já og svo átti ég afmæli á laugardaginn. Var með opið hús og nokkrir vinir mínir komu í heimsókn. Það var bara mjög indælt.
Við erum byrjuð að vera með nokkrum vinum okkar að biðja á fimmtudögum í Garðinum á Reykjanesi. Það er alveg frábært. Guð er að mæta okkur á mörgum sviðum, bæði í hinu andlega og hinu veraldlega. Guð er svo góður. Guð hefur verið að lækna fólk og blessa fólk með fjárhagslegum blessunum.
Jæja nú er kominn tími til að kveðja og fara að hvíla sig áður en maður tekst á við vinnudaginn sem hefst kl 15:30 og líkur kl 12:00.
Með bestu kveðju
Háskólaneminn
Guđrún Helga Högnadóttir
4 athugasemdir